Heiðraður fyrir tóbaksvarnir
Pétur Heimisson, yfirlæknir á Egilsstöðum, fékk nýverið viðurkenningu fyrir starf sitt í þágu tóbaksvarna á Íslandi.
Pétur fékk viðurkenninguna fyrir að hafa lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum með baráttuvilja, framsýni og hugrekki. Auk Péturs fengu Þorvarður Örnólfsson og Jóhannes Jónsson úr Bónus einnig viðurkenningar.