Helgin: Bandaríkjamaður frá Fáskrúðsfirði sýnir í Neskaupstað
Bandaríski listamaðurinn Marc Alexander opnar nýja sýningu sína í Þórsmörk í Neskaupstað á morgun. Norðfirðingurinn Þorbergur Ingi Jónsson heldur fyrirlestur um langhlaup á Egilsstöðum.Marc Alexander flutti til Fáskrúðsfjarðar fyrir ári. Hann starfaði áður í bankageiranum í Boston en sleppti tökum af honum og skipti um umhverfi.
Á sýningunni sýnir hann ný röð klippimynda sem kallast Norðurskautsráðið. Þar veltir hann upp spurningum sem snúa að bráðnum heimskautaíssins og hvernig brugðist er við því - eða ekki!
Ungmennafélagið Þristur býður upp á námskeið með Þorbergi Inga Jónssyni, einum fremsta utanvega- og ofurlengdahlaupara landsins. Á námskeiðinu fjallar hann meðal annars hlaupastíl og gagnleg ráð þegar hlaupið er upp og niður brekkur.
Í Vallanesi verður haustmarkaður Móður Jarðar opinn frá 12-17 á morgun. Þar er hægt að kaupa ferska uppskeru af ræktun sumarsins á býlinu.
Á sunnudagskvöld verður gospelsamkoma í stað hefðbundinnar guðsþjónustu í Egilsstaðakirkju. Sr. Þorgeir Arason predikar og Tryggvi Hermannsson leikur á hljóðfæri og leiðir gospelhópinn. Tekið er við frjálsum framlögum til endurbyggingar Grímseyjarkirkju í lokin.
Austfirska barnamenningarhátíðin BRAS heldur áfram. Á sunnudag frá 12-17 er í boði hljóðupptaka og fræðsla um hljóðverið í Stúdíó Síló með Vinny Wood. Smiðjan er opin ungmennum á aldrinum 14-21 árs.
Karlalið Þróttar í blaki spilar útileik gegn Aftureldingu á morgun. Kvennaliðið mætir KA á Akureyri á sunnudag. Körfuknattleikslið Hattar heimsækir Selfoss í kvöld.