Hlaupið til styrktar ungu fólki með krabbameini
Hlaupið verður til styrktar Krafti, félags ungs fólks með krabbamein, á Fáskrúðsfirði á sunnudag. Þetta er annað tveggja hlaupa utan höfuðborgarinnar.Á Fáskrúðsfirði verður hlaupið ræst klukkan þrjú í fjölskyldugarðinum, en endamarkið verður einnig þar.
Í boði verður annars vegar 5 km hringur í bænum og inn fyrir ósinn, hins vegar skemmtiskokk þægilegan hring fyrir alla fjölskylduna.
Kraftur fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu. Að auki verður hlaupið í Reykjavík á sama tíma og milli Ísafjarðar og Súðavíkur.
Þátttökugjald er 2000 krónur fyrir 16 ára og eldri. Veitingar verða í boði við lok hlaupsins.