Hreindýrið unir sér vel með hestunum
Hreindýrskálfur hefur undanfarna mánuði haldið til í hestahópi á Þorvaldsstöðum í Skriðdal. Dýrið virðist una hag sínum þar vel og hefur ekki sýnt á sér neitt fararsnið.„Það fylgir eftir hestunum, leikur sér með þeim og kúrir sig niður með þeim í vondum veðrum,“ segir Andri Fannar Traustason, sem býr á Þorvaldsstöðum.
Hann segir dýrið hafa komið í Þorvaldsstaði í desember og hafi þá verið búið að vera í mánuð á Lynghól, bæ sem er töluvert utar í dalnum. „Það sá að það væri miklu betra að vera hjá okkur í fæði!“
„Það fer ekkert í burtu meðan við gefum hestunum, það heldur sig bara í 10-15 metra fjarlægð. Það hefur ekki sýnt á sér neitt fararsnið, ef aðrir koma en úr fjölskyldunni lætur það sig hverfa á meðan en kemur svo aftur.“
Kálfurinn er karlkyns en hefur ekki hlotið neitt nafn. Andri Fannar segir dýrið hafa lífgað upp á búskapinn á Þorvaldsstöðum. „Litli drengurinn minn hefur gaman af því. Hann segir að það þurfi að kíkja á hestana og hreindýrið.“