Jökulvatn seytlar upp um rannsóknarholu
Landsvirkjun lét
vita af lekanum í lok seinasta árs. Um er að ræða rannsóknarholu sem boruð var
niður í aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar. Upp um rör sem er 15-20 sm vítt
rennur jökulvatn. Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti Fljótsdalshéraðs segir
lekann töluverðan, eða eins og rörið rúmar.
„Þegar ég var á ferðinni rann vatnið út í móa fyrir neðan og var ekki farið að mynda neitt landbrot. Trúlega leitar vatnið í nálæga læki. Ekki er hægt að útiloka að áhrifa gæti gætt í fjallinu með landbroti og svo eru vatnsból bæjanna neðst fjallinu og mikilvægt að þeim sé ekki stofnað í neina hættu. Það sýnist nú ekki verkfræðilega óframkvæmanlegt að stöðva vatnsrennslið og farið verður fram á að það verði gert.“