Jólafriður við kertaljós á sunnudag
Næstkomandi sunnudag verða haldnir tónleikarnir Jólafriður í Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar á Eskifirði. Það er tónlistarmaðurinn Daníel Arason sem er frumkvöðull að tónleikunum og hefur haft veg og vanda af þeim frá upphafi. Tónleikarnir hafa verið haldnir árlega í sjö ár og áhersla lögð á þátttöku tónlistarfólks af Austurlandi og vandaðan flutning. Á tónleikunum koma fram einsöngvarar, kór og hljómsveit, ásamt strengja- og blásarasveit. Flutt verður jólatónlist úr ýmsum áttum en meginmarkmiðið er að skapa rólega og friðsæla stemningu. Eingöngu verður kveik á kertaljósum og tilvalið er að koma og njóta fallegrar tónlistar til að slaka á í lok aðventu.
Tónleikarnir verða sunnudaginn 21. desember kl. 20:00 í Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar.