Kenna fólki að takast á við kvíða og angist

Með því að læra að skoða hugsanagang okkar getum við fengið aukinn skilning á líðan okkar og hegðun og sjáum betur tengslin þarna á milli. Ef við rekumst á óraunsæjar, neikvæðar eða óhjálplegar hugsanir þá getum við þar af leiðandi frekar breytt þeim og æft okkur í að hugsa á röklegri eða hjálplegri hátt,“ segir Sigurlín H. Kjartansdóttir, sálfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA.)

Sigurlín mun í samvinnu við Védísi Klöru Þórðardóttur, hjúkrunarfræðings í geðheilbrigðisteymi HSA, halda allnýstárleg námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) bæði á Egilsstöðum og á Reyðarfirði á næstunni. Þau námskeið í ofanálag við rafræna atferlismeðferð sem verið hefur í boði um skeið á flestum heilsugæslum landsins.

Hugræn atferlismeðferð leitast við að kenna einstaklingnum að finna hugsanlega lausn á andlegum vandamálum með því að læra að þekkja eigin hugsanir og hversu víðtæk áhrif þær geta haft á andlega líðan. Sigurlín segir að þó slíka námskeið taki í sjálfu sér ekki langan tíma þá lýkur meðferð í raun aldrei.

„Maður klárar aldrei HAM meðferð þótt henni ljúki oft á frekar skömmum tíma, því maður fær í hendurnar verkfæri til að hafa áhrif á og vinna með eigin hugsanir og hugsanagang en það er svo í höndum hvers og eins að halda áfram að æfa sig, vera opinn og vakandi fyrir neikvæðum eða óhjálplegum hugsanaferlum og takast á við þau með uppbyggjandi hætti.

Fyrsta námskeiðið hefst þann 28. febrúar en hist er vikulega í rúman mánuð.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.