Klerkur að veiðum
Gunnlaugur Stefánsson, formaður Veiðifélags Breiðdæla, flugráðs, prestur að Heydölum og fyrrverandi Alþingismaður var nýlega að veiðum í Breiðdal.
Sjónvarpsmaðurinn knái, Þorsteinn J. Vilhjálmsson, var þar á ferð með sjónvarpstökuvél og festi baráttu Gunnlaugs við lax á filmu. Stórlaxinum var sleppt aftur í ána en myndbandið má sjá hér.
Í Breiðdalsá veiddust í gær tveir laxar sem vógu yfir tuttugu pund. Báðum var sleppt aftur.