Komir þú á Grænlandsgrund
Grænlandskynning var í Slysavarnarfélagshúsinu í Neskaupstað fyrr í dag og var húsfyllir. Það var Norðfirðingurinn Stefán Herbertsson, sem hefur verið viðloðandi Grænland síðustu tíu árin og er nú með fasta búsetu þar, sem var með kynninguna. Frásögn hans af landi og þjóð var ákaflega skemmtileg og umfram allt fróðleg. Það var húsfyllir á fundinum og góður rómur gerður að máli Stefáns.
Ína Gísladóttir formaður Ferðafélags Fjarðamanna sagði frá ferð hóps á heimaslóðir Stefáns s.l. sumar og sýndi litskyggnur. Kaffi og kökur voru á vegum Grænlandshópsins og ber að geta þess að nokkrir úr hópnum komu langt að til að vera á fundinum.
Mynd: Stefán Herbertsson.
(mynd og texti Elma Guðmundsdóttir)