Kompásstjarna búsett eystra
Ragnar Magnússon, sem var barinn af Benjamín Þ. Þorgrímssyni, fyrir framan leyndar tökuvélar sjónvarpsþáttarins Kompáss og sýnt í vikunni, býr á Egilsstöðum.Hann flutti lögheimili sitt austur í sumar og hóf að vinna hjá Alcoa Fjarðaáli.
Samkvæmt heimildum Austurgluggans á Ragnar einkahlutafélagið Eignarhaldsfélagið Traustur ehf. sem á meðal annars forláta Benz bifreið sem vakti fyrst athygli á Ragnari á Egilsstöðum í ágúst síðastliðnum og sást í Kompásþættinum. Benzinn er af gerðinni 55 AMG, nýskráður í febrúar 2006.
Eignarhaldsfélagið Traustur er skráð með lögheimili að Breiðvangi 4 í Hafnarfirði. Ragnar rak áður nokkra skemmtistaði í Reykjavík, meðal annars Q-bar og Oliver.