Aðstandendur konu, sem býr á dvalarheimili
aldraðra á Djúpavogi, hafa kvartað undan aðbúnaði á heimilinu við heilbrigðisyfirvöld.
Konan hefur tvisvar á skömmum tíma dottið fram úr rúmi sínu að næturlagi og í
annað skiptið lá hún á gólfinu það sem eftir var nætur.
Fréttablaðið
greinir frá málinu á forsíðu í dag. Þar kemur fram að hvorki sé næturvarsla né
neyðarhnappur í vistarverum íbúanna, bara gefið upp símanúmer sem íbúar geti
hringt í þurfi þeir aðstoð á nóttunni. Sagt er að ekki hafi verið svarað þegar
konan hringdi í númerið.
Heilbrigðisstofnun
Austurlands tók við rekstri dvalarheimilisins um seinustu áramót af Djúpavogshreppi.
Haft er eftir Lilju Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarforstjóra, að stjórnendur
dvalarheimilisins séu að skoða málin. „Það eru ekki fjárhagslegar forsendur til
að hafa næturvakt á dvalarheimilinu, það er heila málið.“
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.