Mótmælt í miðbæ Egilsstaða
Um þrjátíu manns þegar mest lét stóðu mótmælavakt í miðbæ Egilsstaða í kvöld og kröfðust þess að ríkisstjórnin færi frá. Voru mótmælendur með gjallarhorn og ýmis ásláttarhljóðfæri til að undirstrika kröfu sína. ,,Ekki meir Geir" hljómaði í kvöldloftinu. ,,Við ætlum að hittast hér aftur annað kvöld kl. 20 og halda áfram mótmælum" sögðu ungar konur sem staðið höfðu mótmælavaktina frá því um kvöldmatarleytið. Fólkið kveikti eld á planinu og notaði til þess vörubretti. Óeinkennisklæddur lögreglumaður birtist þegar líða tók á mótmælafundinn og tók mynd af viðstöddum. Fundurinn fór einkar friðsamlega fram.
Frummælendur á mótmælafundi í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum næstkomandi laugardag verða Þórður Mar Þorsteinsson menntaskólakennari og Guðveig Eyglóardóttir bóndi. Fundurinn hefst kl. 15.
Ljósmyndir/Steinunn