Naumur ósigur
Höttur tapaði naumlega, 83-80 fyrir Val í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi.
Valsmenn leiddu allan leikinn en Hattarmenn voru aldrei langt undan. Þegar sextán sekúndur voru til leiksloka minnkaði Sveinbjörn Skúlason muninn í tvö stig með þriggja stiga körfu. Valsmenn fengu víti og nýttu annað þeirra og lokaskot Hattar geigaði. Staðan í hálfleik var 47-41. Sveinbjörn var stigahæstur leikmanna Hattar með 30 stig, Ben Hill skoraði 23 og Jerry Cheeves 19.
Í dag fer Austurlandsmótið í sundi fram í Neskaupstað og leikið er í 2. og 3. deild í blaki á Seyðisfirði.