Nesskóli í öðru sæti í keppni í fjármálalæsi
Nesskóli hafnaði í öðru sæti í keppni meðal tíundu bekkja landsins í fjármálalæsi. Þetta er í þriðja sinn sem keppnin er haldin og hefur skólinn áttu góðu gengi að fagna í henni.„Ég er afar stoltur af mínu fólki,“ segir Eysteinn Þór Kristinsson, skólastjóri Nesskóla.
Skólinn fór með sigur af hólmi í fyrra en lenti nú í öðru sæti á eftir Myllubakkaskóla í Keflavík. Í ár tóku hátt í 600 nemendur í 10. bekk grunnskóla landsins þátt. Í tilkynningu kemur fram að stelpur hafi að meðaltali verið hærri en strákar og skólar utan höfuðborgarsvæðisins hærri en innan þess.
Að keppninni standa Samtök fjármálafyrirtækja og Landssamtök lífeyrissjóða en á þeirra vegum er gefið út kennsluheftið Fyrstu skref í fjármálum sem nýtt er í Nesskóla.
Eysteinn segir það lukku að umsjónarkennari bekkjarins sé einnig stærðfræðikennarinn og heftið nýtist bæði í stærðfræði og lífsleikni. „Í stærðfræðinni er verið að reikna skatta og laun og í heftinu er farið yfir sparnað og lán sem nýtist síðar í lífinu,“ segir hann.
Hann bætir við að hann sé viss um að árangurinn hafi náðst með mikill samheldni og hvatningu frá kennara. Að auki hafi það verið áskorun að halda í titilinn frá í fyrra. Þótt það hafi ekki tekist sé árangurinn glæsilegur og framtíð nemendanna björt.