Nítján fjölbreytt samfélagsverkefni hlutu styrk frá Styrktarsjóði Fjarðaáls

Nítján samfélagsverkefni fengu styrki úr Styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls þegar úthlutað var úr sjóðnum fyrir skemmstu. Þrettán styrkir voru veittir úr Spretti, styrktarsjóði UÍA og Fjarðaáls til íþróttastarfs á Austurlandi.


Héraðsskjalasafn Austfirðinga hlaut hæsta styrkinn eða eina milljón króna. Styrkurinn er veittur til að koma öllum kvikmyndafilmum, myndböndum, segulböndum og snældum um héraðs- og menningarsögu Austurlands á stafrænt form.

Styrkirnir eru veittir frjálsum félagasamtökum eða stofnunum á Mið-Austurlandi. Að þessu sinni var úthlutað 6,3 milljónum króna. Veittir eru verkefnastyrkir en ekki styrkir til reksturs.

Við sama tækifæri var styrkjum úthlutað úr Spretti sem einkum ætlað að styrkja íþróttaiðkun barna og unglinga með einkunnarorð Alcoa um afburði (excellence) að leiðarljósi. Alcoa Fjarðaál sér um fjármögnun sjóðsins en UÍA um skipulag og utanumhald.

Að þessu sinni voru veittir sex iðkendastyrkir, samtals að upphæð 500.000 kr. Fjórir þjálfarar fengu styrk vegna þátttöku í verkefnum samtals að upphæð 200.000 kr. og þá fengu þrjú aðildarfélög UÍA styrk vegna verkefna, samtals að upphæð 150.000 kr.

Úthlutanir úr styrkarsjóði Alcoa Fjarðaáls.

Geðsjúk baráttusamtök „Faces of depression“ verkefnið: ljósmyndun á andlitum þunglyndra á Austurlandi.
Félag Heyrnalausra Upptökuhljóðver til framleiðslu á fræðslu og efni á táknmáli t.d. Tinnu táknmálsálfi.
Foreldrafélag Grunnskóla Reyðarfjarðar: Endurnýjun á endurskinsvestum fyrir yngsta stig skólans.
Jassklúbbur Egilsstaða: Hljómsveitarnámskeið á Austurlandi.
Minjasafn Austurlands: Verkefnið Fest Tråden; rannsaka og bera saman útsaum kvenna á Austurlandi og Vesterålen í Noregi.
Myndlistarfélag Fljótsdalshéraðs: Afmælissýning og samstarfsverkefni allra félaga sem stendur frá 17. júní til 8. okt. 2016.
Náttúrustofa Austurlands: Að halda 5 daga náttúrufræðinámskeið fyrir börn 8-10 ára samhliða gönguvikunni „Á fætur í Fjarðabyggð.“
Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan: Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar sumarið 2016.
Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar: Þátttökugjöld á lúðrasveitarmót.
Ungmennafélagið Neisti: Forvarnarstarf í formi fyrirlestra og fræðslu, „Edrúlífið fyrir alla“.
Ungmennafélagið Valur: Byggja upp íþróttina Tchoukball á Austurlandi.
Listaakademía Verkmenntaskóla Austurlands: Búningagerð fyrir leikritið „Lovestar“ eftir Andra Snæ Magnason.
7. bekkur Vopnafjarðarskóla: Þátttaka í First Lego League keppninni á Tenerife 4. – 7. maí síðastliðinn.
Æskulýðssamband kirkjunnar á Austurlandi (ÆSKA): Farskóli leiðtogaefna á Austurlandi fyrir 14-17 ára unglinga.
Björgunarsveitin Hérað: Kaup á nýjum sjúkratöskum í farartæki sveitarinnar.
Lortur framleiðslufélag ehf.: Gera heimildarmyndina „Blindrahundur“ sem fjallar um myndlistarmanninn Birgi Andrésson sem lést árið 2007.
Gunnarsstofnun í samvinnu við Sviðsverk: Setja upp leiksýninguna „Sælir eru einfaldir“ sem er byggð á samnefndri bók Gunnars Gunnarssonar.
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs - Sláturhúsið: Þjóðleikur á Austurlandi.
Héraðsskjalasafn Austfirðinga: Stafræn afritun á hljóð- og myndefni um héraðs- og menningarsögu Austurlands.

Styrkir úr Spretti

Iðkendastyrkir:
Atli Fannar Pétursson Þróttur-blak
Gígja Guðnadóttir Þróttur-blak
Halldóra Birta Sigfúsdóttir Umf. Valur-skíði
Lísbet Eva Halldórsdóttir Höttur-fimleikar
Þórarinn Örn Jónsson Þróttur-blak
Glímuráð Vals Valur-glíma

Þjálfarastyrkir:
Aðalbjörg Ósk Guðmundsdóttir Brettafélag Fjarðabyggðar
Stefán Einar Kristjánsson Brettafélag Fjarðabyggðar
Borja Gonzalez Vicente Þróttur
Anna Maria Vidal Bouza Þróttur

Félagastyrkir:
Brettafélag Fjarðabyggðar Parkour/hjólabrettanámskeið
UMF Þristur Hjólakraftur: Verkefnið snýr að því að skapa ungmennum einkum þeim sem standa höllum fæti tækifæri til aukinnar lýðheilsu, samfélagsþátttöku og styðja þau við að temja sér heilbrigðan lífsstíl og taka þátt í skipulögðu tómstundastarfi.
Valur: Kynning á íþróttinni Tcoukball sem er yfir þrjátíu ára gömul íþrótt sem nýtur vaxandi vinsælda um allan heim.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar