Nýjungar í sorphirðumálum á Héraði
Fljótsdalshérað og Íslenska gámafélagið hafa gert með sér samning um þriggja tunnu sorphirðukerfi í sveitarfélaginu. Samningurinn nemur þrjúhundruð milljónum króna til sjö ára og mun breyta sorphirðukerfinu í grundvallaratriðum.
Samningurinn fjallar um sorphirðu á Fljótsdalshéraði, þar sem þrjár tunnur á hvern aðila verða uppistaðan í sorphirðukerfinu. Hugmyndin er að minnka sorp til urðunar og flutnings til mikilla muna til að ná fram sparnaði. Lífrænn úrgangur verður ekki urðaður. Á þann hátt sparast einnig urðunarsvæði. Sorphirðugjöld munu ekki hækka umfram verðbólgu þrátt fyrir fjölgun tunna. Gjöld þeirra sem þegar hafa fengið sér endurvinnslutunnu munu lækka.
Íslenska gámafélagið tekur við sorphirðu á Héraði nú um áramót. Í maí í vor hefst kynningarferli innan sveitarfélagsins um flokkunina og í september fá allir tunnurnar þrjár til notkunar. Innleiðingu breytinganna mun ljúka í árslok 2009. Fljótsdalshérað er fjórða svæðið á landinu sem tekur upp hið nýja kerfi.
Tunnurnar þrjár sem íbúar fá afhentar á næsta ári eru brúna tunnan, sem eingöngu er ætluð undir lífrænan úrgang. Í græna tunnu má setja allan pappír heimilisins, bylgjupappa og pappa, plast, minni málmhluti (t.d. niðursuðudósir, málmlok af glerkrukkum) og fernur. Í gráa tunnu fer allt sem ekki getur farið í brúnu eða grænu tunnuna, né farið í endurvinnslu.
Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og Jón Þórir Franzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins, undirrituð samninginn í dag.
Athugið að meðfylgjandi ljósmynd tengist í engu sorphirðumálum á Fljótsdalshéraði.