Nóg af birkifræjum á Austurlandi
Mikið er af birkifræjum á Norður- og Austurlandi þetta haustið. Landsátak til söfnunar fræja stendur nú yfir í kappi við haustið.„Það er mikið af fræi á Austurlandi, þar er hægt að fylla heilu sekkina á stuttum tíma,“ segir Kristinn Þorsteinsson, verkefnisstjóri söfnunarinnar.
Íslensk stjórnvöld hafa sett markmið um að birki þeki 5% lands í stað 1,5% í dag. Í það þarf töluvert magn af fræjum. Í einum lítra eru um 90 þúsund fræ en ekki öll fræ sem fara í jörðu verða að trjám.
Kristinn segir að þrátt fyrir mikið hvassviðri á Austurlandi fyrir tveimur vikum eigi enn að vera nóg eftir af fræi. Möguleikarnir á að safna því minnki vissulega með hverri haustlægðinni en fræin geta þó staðið ýmislegt af sér. „Árið 2020 hékk fræið á trjánum fram undir jól þótt það hafi komið hver hvellurinn á fætur öðrum.“
Birkið geymir fræ sín í rekli sem hægt er að slíta af í heilu lagi eða draga fræin af. Gott er að setja fræin í poka, þó alls ekki plastpoka þar geta þau myglað. Þegar heim er komið þarf annað hvort að breiða fræin út til þurrkunar í 7-10 daga vilji fólk gróðursetja sjálft í vor eða koma þeim á söfnunarstaði átaksins sem eru verslanir Bónuss, bensínstöðvar Olís eða starfsstöðvar Skógræktarinnar. Tekið verður á móti fræjum að minnsta kosti út þennan mánuð eða eins lengi og þau haldast á trjánum.