Nýtt verksmiðjuhús að rísa á Vopnafirði
Nýtt verksmiðjuhús HB Granda á Vopnafirði, sem hýsa mun fiskmjölsverksmiðju félagsins, er nú sem óðast að taka á sig mynd. Framkvæmdum miðar vel en starfsmenn Héðins hf. hófu að reisa stálgrind verksmiðjuhússins um síðustu mánaðamót. Áður var búið að steypa hús, sem hýsa mun stjórnstöð verksmiðjunnar, skrifstofur, rannsóknastofu og starfsmannarými.
Á vef HB Granda kemur fram að nýja verksmiðjuhúsið er 1.200 fermetrar að flatarmáli og á framkvæmdum að vera lokið um næstu áramót.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, er nú búið að reisa góðan hluta stálgrindarinnar og jafnframt er búið að koma fyrir á undirstöðum á verksmiðjugólfinu tveimur stærstu tækjunum sem áður voru í fiskmjölsverksmiðju félagsins í Reykjavík en það eru loftþurrkarinn og eimingartækið.
Vildarvinir
Austurfrétt birtir fréttir að austan alla virka daga, öllum aðgengilegar og reiðir sig á auglýsingatekjur og styrki frá lesendum sínum til að halda úti þjónustunni.
Hvers virði finnst þér að hafa aðgang að fréttaþjónustu á borð við þessa?
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Austurfrétt.