Þorrablót átthagafélaga
Átthagafélög Vopnfirðinga, Borgfirðinga, Héraðsbúa og Breiðdælinga halda sameiginlegt þorrablót í Kópavogi 6. febrúar.
Þorrablótin eru fastur liður í lífi margra Austfirðinga, jafnt brottfluttra sem annarra og verður jafnan fagnaðarfundur þegar gamlir grannar og vinir hittast og gleðjast saman. Margir hafa þann sið að hittast í heimahúsi áður en haldið er á blótsstað og styrkja þannig vinaböndin enn frekar.
Þorrablót átthagafélaganna hafa átt vaxandi vinsældum að fagna og á sama tíma og stór hópur fólks getur ekki hugsað sér að missa af þessari skemmtun bætast nýir í hópinn á hverju ári.
Dagskráin verður að þessu sinni í höndum Arndísar Þorvaldsdóttur leiðsögukonu og þáttagerðarkonu með meiru og ræðumaður kvöldsins verður Sigfús Vilhjálmsson frá Brekku í Mjóafirði. Bæði eru Austfirðingum að góðu kunn og er ekki að efa að glatt verður á hjalla nú sem endra nær.
Forsala aðgöngumiða verður að Auðbrekku 25 – 27 í Kópavogi 4. og 5. febrúar frá kl. 17 – 19 og þorri svo blótaður af krafti laugardaginn 6. febrúar. Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi og styður við fjöldasönginn.
Vildarvinir
Austurfrétt birtir fréttir að austan alla virka daga, öllum aðgengilegar og reiðir sig á auglýsingatekjur og styrki frá lesendum sínum til að halda úti þjónustunni.
Hvers virði finnst þér að hafa aðgang að fréttaþjónustu á borð við þessa?
Smelltu hér ef þú vilt styrkja Austurfrétt.