Segir Seyðfirðinga rjúfa samstöðuna
Guðmundur Rafnkell Gíslason, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, segir bæjarstjórn Seyðisfjarðar hafa rofið samstöðuna um gerð jarðganga milli þéttbýliskjarnanna á mið-Austurlandi.
Guðmundur skrifar um ályktun bæjarstjórnar Seyðisfjarðar á bloggsíðu sína
í dag. Í seinustu viku samþykkti bæjarstjórnin ályktun þar sem samþykkt
var að leita allra leiða til að gerð verði göng milli Seyðisfjarðar og
Fljótsdalshéraðs. Í greinargerð með ályktuninni, sem lögð var fram af
oddvitum beggja flokka í bæjarstjórn, er meðal annars bent til
farartálmans sem Fjarðarheiði hefur reynst gagnvart farþegum
farþegaferjunnar Norrænu. Þar segir að erfitt hafi reynst að afla svo
stórhuga framkvæmd, sem Samgöng séu, fylgist í einum áfanga. „Áratuga
stórhuga barátta Seyðfirðinga fyrir jarðgöngum hefur litlu skilað.
Seyðfirðingar hafa sýnt öðrum jarðgangaframkvæmdum í landinu mikinn
skilning og staðið heilshugar að baki þeim. Nú er einfaldlega komið að
Seyðfirðingum. Við óbreytt ástand í samgöngumálum geta Seyðfirðingar
ekki lengur við búið.“
Guðmundur, sem búsettur er á Norðfirði, segist hafa stutt Samgöng og
meira að segja verið fylgjandi því að fresta nýjum Norðfjarðargöngum ef
tryggt yrði að Samgöng yrðu að veruleika. Hann hafi hlakkað til að
komast til Seyðisfjarðar, jafnvel sameinast þeim, enda séu bæirnir um
margt líkur og perlan Mjóafjörður á milli þeirra.
„Seyðisfjörður er endastöð, Neskaupstaður líka. Samgöng hefðu breytt
því. Nú hefur bæjarstjórn Seyðisfjarðar ályktað og ég verð að segja að
ég er súr. Ég man ekki betur en að ég og mínir félagar höfum verið
sakaðir um að eyðileggja samstöðuna um Samgöng. Margur heldur mig sig,“
ritar Guðmundur og spyr að lokum: „Seyðfirðingum liggur kannski á í
flug?“