Skýlin enn laus
Varamannaskýli á Fellavelli eru enn laus og engin markatafla sjáanleg. Úrbótum átti að vera lokið í þessari viku.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands sendi sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði kvörtun vegna lausra varamannaskýla í byrjun júlí. Málið var tekið fyrir á fundi fasteigna- og þjónustunefndar sveitarfélagsins í vikunni. Í bókun segir að illa hafi gengið að fá framkvæmdaaðila til að klára uppsetningu skýlanna og markatöflu en hvort tveggja eigi að vera jarðföst í vikunni. Við það hafði ekki verið staðið þegar Austurglugginn kom við á Fellavelli í kvöld.