Spennandi að komast í ný sýningarrými
Sýning á vegum LungA-lýðháskólans opnaði í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á föstudag. Skólastjóri segir spennandi fyrir nemendahópinn að takast á við nýtt sýningarrými eftir að hafa prófað flest þau rými sem til séu á Seyðisfirði þar sem skólinn starfar.„Ég var búinn að ræða við Ragnhildi (Ásvaldsdóttur, sláturhússtjóra) hvort ég ætti ekki að koma með stóra hópinn minn yfir heiðina og setja upp sýningu fljótlega eftir að húsið yrði tilbúið og eins og svo oft sagði hún já,“ segir Lasse Høgenhof, einn stjórnenda LungA-skólans um aðdraganda sýningarinnar en Sláturhúsið opnaði í september eftir gagngerar endurbætur.
Hátt í 30 nemendur hafa verið við nám í skólanum á þessari önn og eiga þeir flestir verk á sýningunni. „Hér eru verk eftir einstaklinga en flestar verkin höfum við unnið að einhverju leyti saman,“ útskýrir Lasse.
Sýningin, sem stendur út vikuna í Sláturhúsinu, markar jafnframt endalok annarinnar en yfirstandandi vika er síðasta kennsluvikan fyrir jól. Nýr nemendahópur kemur svo eftir áramótin.
„Við höfum ekki alltaf sett upp lokasýningar. Þær eru ekki eitthvað sem við teljum sérstaklega mikilvægt. Stundum byrjum við á lokasýningunni til að klára væntingarnar til hennar frá þannig við getum einbeitt okkur að sköpuninni.“
Nemendurnir hafa unnið að sýningunni undanfarnar tvær vikur. „Við fengum Unu Björk Magnúsdóttur og Joe Keys með okkur sem sýningarstjóra og þau hafa verið hjá okkur síðustu daga. Við unnum verkin á tveimur vikum og settum þau upp á þremur dögum. Þetta hafa verið langir dagar.“
Listaverk í öllum hornum
Sýningin nýtir húsið vel, auk þess sem verk eru í aðalsýningarrýmunum eru einnig nýtt skot eins og baðherbergi og lyftan. „Sýninign er ekki búin til inn í rýmið heldur gerðum við verkin og fundum þeim svo pláss. Það er áhugavert að rýmin, sem arkitektarnir hafa kannski talið mestu skipta, eru ekki endilega áhugaverðustu sýningarrými heldur geta það verið eitthvert afvikið horn eða lyftan.
Það er heilbrigt fyrir listafólk að fara og prófa ný sýningarrými. Ég held að við séum búin að prófa flest öll sýningarrými á Seyðisfirði, til dæmis Sundhöllina og kirkjuturninn og þess vegna er gaman að koma hingað í Egilsstaði. Það er líka spennandi að fara að heiman í nokkra daga og hitta nýtt fólk,“ segir Lasse.
LungA-skólinn hefur haldið sínu striki með starfsemi í gegnum Covid-faraldurinn og opnað sýningar en kringumstæðurnar hafa verið sérstakar. „Við höfum sýnt en yfirleitt fyrir lokaðan hóp. Við höfum ekki getað verið með opnar sýningar eða formlegar opnanir fyrir almenning eins og við gerðum hér.“
Eins og búast má við þegar á þriðja tug listamanna gerir sýningu þá eru listaverkin afar fjölbreytt að efni og umfangi. „Ef ég ætti að flokka þessa sýningu þá teldi ég hana til samtímalistar. Sumt er tilraunakennt, annað ekki. Við erum hér með mannfræðing sem vinnur með prentlist og sagnahefð sem er ekki eitthvað sem telst tilraunagerð en hér eru vissulega gerðar tilraunir með form og virkni.“
Hægt er að skoða verk nemenda LungA-skólans á opnunartíma Sláturhússins þessa vikuna.