Skip to main content

Stjórn AFLs segir stjórnvöldum hafa mistekist að skapa sátt

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 19. jan 2010 14:43Uppfært 08. jan 2016 19:21

Stjórn AFLs Starfsgreinafélags segir stjórnvöldum hafa mistekist að skapa sátt í samfélaginu um viðbrögð og aðgerðir í kjölfar bankahrunsins.

 

afl.gifÞetta kemur fram í ályktun sem stjórnin sendi frá sér í gærkvöldi.

Þar kemur kemur fram að stjórnin harmi þá upplausn sem orðin sé í yfirstjórn landsins. „Þeir stjórnmálamenn sem fara í forystu stjórnmálaflokka landsins hafa algerlega brugðist þeirri skyldu sinni að leiða þjóðina upp úr efnahagskreppu og skapa sátt um nauðsynlegar aðgerðir.

Stjórn AFLs telur að stjórnvöld hafi frá hruni bankakerfisins í október 2008 brugðist því hlutverki að skapa sátt í samfélaginu um viðbrögð og aðgerðir. Almenningur upplifir vaxandi óréttlæti  og að þeir sem stefndu þjóðfélaginu í óefni  njóta enn eigna sinna á meðan þúsundir heimila almenns launafólks glíma við alvarlega greiðsluerfiðleika og eignaupptöku.

AFL Starfsgreinafélag varar við því að ef ekki tekst að ná einhverri sátt í samfélaginu munu átök m.a. á vinnumarkaði eiga eftir að harðna til muna á næstu misserum. Ennfremur lýsir félagið áhyggjum sínum af því að viðvarandi óvissa í efnahagsmálum stefnir grunnstoðum velferðarkerfisins í voða og að ef ekki tekst að halda áfram efnahagsáætlun stefnir í annað og ekki minna áfall en við glímum við nú þegar. „

Stjórnin telur einnig rétt að Icesave-lögin fari í þjóðaratkvæðagreiðslan þar sem það sé eina raunhæfa leiðin úr þeirri pattstöðu sem málið er komið í.