Stoltur af 50.000 hlustunum á Spotify

Perla, lag Guðmundar R. Gíslasonar á Norðfirði, er nýlega komin í yfir 50.000 hlustanir á streymisveitunni Spotify. Nýjasta sólóplata hans, Einmunatíð, hefur einnig fengið góðar viðtökur.

Lagið Perla, sem Guðmundur syngur með Bubba Morthens, kom út á 50 ára afmæli Guðmundar í febrúar árið 2020. Texti lagsins hefur ekki síst vakið athygli þar sem hann fjallar um Alzheimer-sjúkdóminn.

„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir þessar viðtökur, það er gaman að eiga einn hittara sem hefur náð í gegn. Það sakar ekki að umfjöllunarefnið er sjaldgæft, það hefur ekki verið sungið um það áður á íslensku.

Ég hef aldrei fengið jafn mikil viðbrögð við neinu sem ég hef gefið út. Ég fæ enn skeyti frá fólki sem þakkar mér fyrir lagið, það eru bara nokkrir dagar síðan ég fékk eitt slíkt frá konu sem ég þekki ekki neitt. Síðan óskuðu Alzheimer samtökin eftir samstarfi. Það gladdi mig að þau tóku eftir laginu því það var ekkert áformað fyrir útgáfuna.“

Gott andlegt veðurfar

Lagið er að finna á plötu Guðmundar sem kom út það ár, Sameinuðu sálum. Í október kom síðan önnur plata, Einmunatíð. „Hún hefur gengið mjög vel og fengið fína spilun, alls rúmlega 30.000 streymi í heildina. Ég gaf hana líka út á geisladisk sem var meðal tíu söluhæstu diskanna hérlendis í fjórar vikur. Þá kláraðist upplagið og ég ákvað að láta gott heita.“

Nafn plötunnar hefur hlotið nokkra athygli því ekki þekktu allir orðið einmunatíð sem samkvæmt orðabók merkir „samfelldur góðviðriskafli, veðursæld“. Það er samt ekki merkingin sem Guðmundur vísar til í titillagi plötunnar.

„Það kom mér á óvart að sumir þekkti ekki orðið þótt ég vissi að það væri lítið notað og þætti sérstakt. Í mínu tilfelli táknar einmunatíð gott andlegt veðurfar.

Ég samdi lagið Einmunatíð skömmu eftir að David Bowie. Ég er undir undir miklum áhrifum af hans síðustu tveimur plötum. Textinn var upphaflega á ensku en síðan fékk ég Bjarna Tryggvason með mér til að gera íslenskan texta. Áhrif Bowie eru samt merkjanleg bæði í laginu og textanum.

Mér fannst strax vænt um lagið, það er listrænt og frumlegt og ákvað snemma í ferlinu að nefna plötuna eftir því. Textinn fjallar samt um vináttu og alkóhólisma og þessa fallegu hugsun um að við hittumst öll að lokum, hvenær sem það verður.“

Guðmundur R. stefnir síðan að því að fylgja plötunni eftir með tónleikum á nýju ári. „Ég ákvað að einbeita mér fyrst að því að gefa út plötuna. Þess dagana er ég að vinna í að skipuleggja tónleikaferð um Austurland og einhverja tónleika á höfuðborgarsvæðinu.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.