Skip to main content

Óásættanleg mismunun dreifbýlis

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 20. jan 2010 19:08Uppfært 08. jan 2016 19:21

Umhverfis- og héraðsnefnd Fljótsdalshéraðs telur óásættanlegt að snjór sé ekki mokaður af heimreiðum í dreifbýli. Þetta kallar nefndin „óásættanlegan mismun milli íbúa sveitarfélagsins“ og bendir á að skilvirkt samgöngukerfi sé forsenda búsetu í dreifbýli.

 

ImageNefndin leggur til að heimreiðarnar verði settar í sama flokk og íbúðargötur, sem kallaðar eru grænar götur, í þéttbýli. Ekki er byrjað að hreinsa þær fyrr en eftir klukkan átta á morgnana, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins.

Þar segir enn fremur: „Þegar unnið er að hreinsun í íbúðagötum er verktaka ekki heimilt að ryðja fyrir heimkeyrslur húsa. Þau tilfelli geta samt komið upp að ekki sé hreinsað frá innkeyrslum fyrr en 1-2 tímum eftir að hreinsun götu er lokið. Það er vegna þess að sú vinna er tímafrek og þá kemur tæki á eftir hefli og hreinsar frá innkeyrslum.“