Sýna gamlar myndir frá Eskifirði á afmælisdeginum
Myndir úr safni kvikmyndatökumannsins Þórarins Hávarðssonar verða sýndar á sunnudag á afmælisdegi Eskifjarðar í tilefni af bæjartíðinni Útsæðinu. Hátíðin hefst í dag.Fyrsti viðburður hátíðarinnar að þessu sinni er myndlistarsýning Steinunnar Sigurðardóttur frá Eskifirði eða „Art SteinSig“ í Randulfssjóhúsi. Steinunn kallar sýninguna „Við sæinn.“ Sýningin opnar kl. 16:00 í dag og verður opin á opnunartíma hússins út ágúst.
Annað kvöld verður hið sívinsælda sundlaugardiskó auk þess sem tónlistarkonan Guðrún Árný verður með sing-a-long. Á laugardag er miðbæjarhátíð með leikjasvæði og síðan markaðsbásum, tónlistaratriðum og fleiru. Heimafólk verður þar í aðalhlutverki eins og á hátíðinni allri. „Hátíðin er með nokkuð hefðbundnu sniði,“ segir Kristinn Þór Jónasson, sem leiðir hana.
Á sunnudag er efnt til kaffisamsætis í Valhöll í tilefni af afmæli Eskifjarðar. Bærinn er einn þeirra sex sem fengu kaupstaðaréttindi þegar einokunarverslunin var lögð af þann 18. ágúst árið 1786 og er því 238 ára í ár. Haldið hefur verið upp á afmælið á Útsæðinu síðustu ár en nú ber svo vel til að sunnudagurinn hittir á afmælisdaginn.
Þar verður sýnt á stórum skjá úrval frétta- og manlífsmynda sem Þórarinn Hávarðsson tók á árunum 1983-2005 á Eskifirði og eitthvað úr nágrannabyggðum.
„Við höfum sýnt gamlar myndir í kaffiboðinu síðustu ár og það hefur tekist mjög vel til. Þórarinn er núna að klára að klippa saman 70 mínútna úrval sem við munum láta ganga á sunnudaginn og við eigum von á að það verði mjög flott. Þarna eru myndir frá 17. júní og sjómannadeginum í bland við viðtöl við fólk,“ segir Kristin.