Tvö ár frá stóru skriðunni

Þess verður minnst á Seyðisfirði í dag að tvö ár eru liðin frá því að stór aurskriða féll á bæinn og olli mikilli eyðileggingu. Gefin er út bók til að minnast atburðanna og haldin athöfn. Þá halda Seyðfirðingar einnig upp á 100 ára afmæli kirkjunnar.

Kerti og tré eru tendruð á Einstaka tréni, en stakt tré sem stóð áður við húsið Sandfell var þar eitt eftir skriðurnar meðan hús og annað tortímdist í kring. Fólk er hvatt til að leggja leið sína að trénu í dag með kerti og leggja við hlið þess.

Í félagsheimilinu Herðubreið verður milli 16 og 19 í dag kynning á bókinni Skriðusögur, sem kemur út í dag. Ströndin Studio gefur bókina út en ritstjórar hennar eru Katja Goljat og Matjaž Rušt. Í henni er að finna ljósmyndir og 27 frásagnir íbúa staðarins um áhrif hamfaranna á líf þeirra.

Klukkan 17:00 opnar sýningin „Ef hús gætu talað“ í Seyðisfjarðarkirkju. Þar verða sýndar myndir af Seyðisfjarðarkirkju í gegnum tíðina en sýningin er hluti af hátíðahöldum í tilefni af 100 ára vígsluafmælis hennar. Þar verða einnig sýnd afmæliskort sem nemendur Seyðisfjarðarskóla hafa unnið í myndlist.

Auk viðburðanna á Seyðisfirði má minna á að Alcoa Fjarðaál í samvinnu við Sláturhúsið og Menningarstofu Fjarðabyggðar bjóða börnum á leiksýningu í dag. Snæfríður Ingvarsdóttir og Sigurður Ingvarsson hafa sett söguna um Litlu stúlkuna með eldspýturnar í nýjan búning.

Sýnt verður í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði klukkar 11 og 12 í dag en í Sláturhúsinu klukkan 16 og 17. Sýningin er 25 mínútur og er hugsuð fyrir börn á aldrinum 3–7 ára fólk á öllum aldri sé velkomið.

Þá stendur Kór Fjarðabyggðar fyrir jólatónleikum í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði klukkan 15:00. Barnakórar í Fjarðabyggð syngja með kórnum. Stjórnandi er Kaido Tani.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.