Uppselt á Bræðsluna
Seinustu miðarnir á Bræðslutónleikna á Borgarfirði eystri í júlí seldust um helgina.
Um eitt þúsund miðar voru settir í sölu í byrjun mánaðarins. Á tónleikunum koma fram Damien Rice, Eivör Pálsdóttir og Magni. Sá síðastnefndi er staddur í Danmörku þessa dagana við upptökur á nýrri plötu hljómsveitarinnar Á móti sól.