VA nemar í fjallgöngu
Nemendur Verkmenntaskóla Austurlands fóru í fjallgöngu í seinustu viku.
Gengið var frá Oddsdal, yfir Magnúsarskarð og þeir hörðustu fóru á Þrætutind. Nokkuð hvasst var á meðan göngunni kom en að sögn Olgu Lísu Garðarsdóttir, skólameistara, fauk enginn. Við komu að skíðaskálanum í Oddsskarði var boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti.