Viðtökur Regnbogahátíðarinnar langt fram úr væntingum – Myndir

Á annað hundrað manns tóku þátt í gleðigöngu sem markaði upphaf Regnbogahátíðar Hinsegin Austurlands á Egilsstöðum síðasta föstudag. Viðburðir í fjórum byggðalögum verða á vegum hátíðarinnar.

„Þetta hefur farið langt fram úr okkar væntingum. Það hafa allir tekið vel í þetta og mætingin verið mjög góð.

Það kom okkur skemmtilega á óvart hve margir gengu með okkur á Egilsstöðum á föstudag,“ segir Tara Ösp Tjörvadóttir, formaður Hinsegin Austurlands.

Gleðiganga hefur verið gengin á Seyðisfirði frá árinu 2016 samhliða Hinsegin dögum í Reykjavík en þetta er í fyrsta sinn sem gengið er á Egilsstöðum. Farið var frá Níunni í miðbænum yfir Fagradalsbraut, þar göngustígur var málaður í regnbogalitunum áður en haldið var áfram upp í Tjarnargarðinn.

Þar var frekari dagskrá með ræðuhöldum og skemmtiatriðum. Meðal þeirra sem fluttu ávarp voru Guðmundur Ingi Guðbrandsson, ráðherra félagsmála, Jódís Skúladóttir þingmaður og fyrrverandi formaður Hinsegin Austurlands og Kristín Þórunn Tómasdóttir, prestur.

Á laugardag tók Regnbogahátíðin síðan þátt í fjölskyldudagskrá LungA í miðbæ Seyðisfjarðar.

Hátíðin heldur síðan áfram um helgina. Annað kvöld verður gengið með Kenderísgöngu Franskra daga á Fáskrúðsfirði og á laugardag með Druslugöngu á Borgarfirði eystra. Á báðum stöðum verða gagnstéttir málaðar í regnbogalitunum.

„Hinsegin menning er rík víða á Austurlandi og við reynum að auðga það sem fyrir er. Okkur hefur alls staðar verið gríðarlega vel tekið og fyrir það erum við mjög þakklát,“ segir Tara.

Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0001 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0012 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0016 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0016 Web2
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0021 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0028 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0030 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0032 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0035 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0045 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0048 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0054 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0063 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0070 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0076 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0093 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0095 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0099 Web
Regnbogahatid Hinsegin Aland Juli22 0103 Web

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.