Vinnuíbúðir fyrir ferðamenn
Fljótsdalshreppur hefur keypt þrjú hús af verktakafyrirtækinu DSD, sem vann að byggingu Fljótsdalsstöðvar. Húsin eru í Hvammseyri og bjuggu verkamenn í þeim á meðan stöðin var byggð. Hluta húsanna stendur til að nýta sem gistiaðstöðu fyrir ferðamenn.
Í öðru lagi
kaupir hreppurinn ellefu eininga lengju sem inniheldur 10 herbergi, sem eru
20-30 fermetrar af stærð. Þau eru öll með eldunaraðstöðu. Ein eining er forstofa
og þvottaðstaða. Hægt er að skipta lengjunni niður í stakar einingar.
Gunnþórunn
Ingólfsdóttir, oddviti Fljótsdalshrepps, segir horft til nota á lengjunni og
skrifstofuhúsnæðinu fyrir ferðaþjónustu í sveitarfélaginu í samstarfi við
áhugasama aðila. „Vonandi finnast þeir því sveitarfélagið hefur lítinn áhuga á
að standa að slíkum rekstri nema til bráðabirgða. Og þá þarf væntanlega einnig
að finna þeim nýja stað til lengri dvalar.“
Byggingarnar
verða afhentar með öllum húsbúnaði ekki síðar en 1. júní, vonandi tilbúin beint
í rekstur. Gunnþórunn segir frágang allan vandaðan og ekki annað að sjá en
húsin geti víða sómt sér vel enda sé ekki á þeim neitt sérstakt vinnubúðalag.