Hljómsveitin Winter Leaves gaf út sína aðra plötu, „Cold September“ rétt fyrir síðustu jól en áður hafði sveitin gefið út litla EP plötu. Hljómsveitina skipa þau Hannes Valur Bryndísarsson og Soffía Björg Sveinsdóttir fyrrum Héraðsbúi.
Höfundur: Fréttatilkynning úr Jólasveinalandi • Skrifað: .
Nú þegar jólasveinarnir eru farnir til sinna heimkynna eftir að hafa glatt börn og fjölskyldur um jólin berast fréttir um að einn elsti Jólasveinninn í Bjólfinum á Seyðisfirði verði lagður inn á dvalarheimili í Jólasveinalandi. Hann mun því ekki sjást oftar á Seyðisfirði eða í nærliggjandi byggðarlögum.
Jóhann Sveinbjörnsson, 86 ára áhugakylfingur á Seyðisfirði, er Austfirðingur ársins að mati lesenda Austurfréttar. Jóhann valdi frekar að fara út á golfvöll að æfa sig kvöld eitt í ágúst frekar en horfa á sjónvarpið. Á vellinum heyrði hann köll ungrar konu sem hafði hrapað í fjallinu fyrir ofan og slasast alvarlega. Ekki mátti tæpara standa að henni yrði bjargað.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni, heldur í kvöld opinn fyrirlestur í Neskaupstað um loftlagsbreytingar og áhrif þeirra á ástandið í sjónum.
Jörðin Eiðar á Fljótsdalshéraði, ásamt þeim fasteignum sem henni fylgja, hefur verið auglýst til sölu. Landsbankinn tók við eigninni af Sigurjóni Sighvatssyni í lok síðasta árs.
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að gengið hefur á með gulum og appelsínugulum viðvörum í meira en mánuð. Philip Vogler á Egilsstöðum samdi nýverið gargaraljóð sem hann segist hafa samið „andspænis öllum gulum og jafnvel dekkri viðvörunum“
Mannbjörg varð í nótt þegar eldur kom upp í rússneska togaranum Enigma Astralis. Hann hét á árunum 2006-17 Aðalsteinn Jónsson og var gerður út af Eskju.