Allar fréttir
Færri ferðamenn – meiri fegurð
Ferðamönnum er ráðlagt að hraða sér í gegnum höfuðborgina og drífa sig beint upp í næstu flugvél austur á land í grein sem birtist nýlega í bandaríska lífsstílstímaritinu Cosmopolitan. Blaðamaður ritsins heimsótti fjórðunginn í haust og fer um hann lofsamlegum orðum.Kæru Jarðarvina vísað frá
Lögreglan á Austurlandi mun ekki taka til meðferðar kæru frá Jarðarvinum vegna meintrar vanrækslu Náttúrustofu Austurlands við rannsóknir á afdrifum og afföllum hreindýrskálfa.Mögulegur skaðvaldur í laxeldi
IPN-veira hefur greinst í laxi úr sjókví Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. Þetta er í fyrsta sinn sem veiran greinist í laxi á Íslandi en hún getur valdið sjúkdómnum brisdrepi í fiskum. Veiran fannst við sýnatöku sem er hluti af reglubundnu innra eftirlit hjá fyrirtækinu.Yfirheyrslan: Jónas Reynir gefur út sína þriðju ljóðabók.
Fellbæingurinn Jónas Reynir Gunnarsson var að gefa út ljóðabókina Þvottadagur. Hún er lokakaflinn í þríleik ljóðabóka sem komu út árið 2017. Hina tvær eru Leiðarvísir um Þorp og Stór Olíuskip. Jónas er í yfirheyrslu vikunnar.
Fyrrum hafnarverði dæmdar fjórar milljónir fyrir ólögmæta uppsögn
Landsréttur hefur dæmt Vopnafjarðarhrepp til að greiða fyrrum hafnarverði fjórar milljónir króna í skaðabætur fyrir hafa brotið gegn ákvæðum kjarasamnings og stjórnsýslulögum með fyrirvaralausri uppsögn haustið 2015. Rétturinn hækkaði bætur sem manninum höfðu verið dæmdar fyrir héraðsdómi auk þess að snúa við hluta dóms um orlof á yfirvinnu.Soroptimistar segja nei við ofbeldi
Soroptimistaklúbbur Austurlands stendur fyrir ljósagöngu næstkomandi mánudag. Gangan er liður í að vekja athygli á baráttu Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Gangan hefst kl. 17.00 við Egilsstaðakirkju og lýkur við Gistihúsið á Egilsstöðum.