Meðal þeirra gagna sem byggt var á við mótun aðalskipulags fyrir Fljótsdalshérað er gríðarlega umfangsmikið ritverk sem Helgi Hallgrímsson, náttúrufræðingur á Egilsstöðum, hefur tekið saman og hann nefnir Náttúrumæraskrá. Þar lýsir Helgi landslagi og örnefnum á rúmlega 600 stöðum og svæðum auk annarra atriða í náttúrufari Fljótsdalshéraðs, svo sem plöntum, fuglum og fiskum. Náttúrumæraskráin er aðgengileg gegnum vef Fljótsdalshéraðs, www.fljotsdalsherad.is.
Nokkur íslensk skip hafa að undanförnu leitað að síld í veiðanlegu magni á Jan Mayensvæðinu en árangurinn af leitinni hefur verið lítill. Meðal skipanna, sem fóru norður undir Jan Mayen, var Lundey NS. Afla skipsins, um 80 tonnum, var landað á Vopnafirði sl. laugardag þar sem hann fór til vinnslu.
Dagana 10 – 12. júlí n.k. heldur Jon Hollesen kórstjóri, söngkennari og raddþjálfari, námskeið í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði. Námskeiðið er öllum opið sem vilja syngja, og nýtist kórsöngvurum einstaklega vel, að sögn Kára Þormar.
Á fundi norrænu forsætisráðherranna á Egilstöðum 14. júní gerði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra grein fyrir því að Alþingi Íslendinga hefði nú til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan gerði ráð fyrir því að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Forsætisráðherra kvaðst vonast til þess að tillagan yrði samþykkt og óskaði eftir stuðningi og góðum ráðum norrænu ESB-ríkjanna í því ferli sem þá tæki við. Forsætisráðherrar norrænu Evrópusambandsþjóðanna fögnuðu þessum áformum og buðu Íslendinga velkomna í Evrópusamstarfið.
Ungmenni frá ungliðadeild Björgunarsveitarinnar Héraðs ganga nú í hús hjá fyrirtækjum og einstaklinum og safna áheitum vegna fyrirhugaðrar göngu upp á Kárahnjúk, Þeim hafði ekki orðið mikið ágengt þegar þau knúðu dyra hjá Austurglugganum, en hafa ber í huga að innan tíðar verður það þetta unga fólk sem stendur upp frá því sem það er að gera í hvaða aðstæðum sem vera kann og fer til leitar og björgunar þeim sem á þurfa að halda og oft við erfiðustu aðstæður.
Í dag fannst sprengja í flaki skipsins El Grillo á botni Seyðisfjarðar. Hún fannst þegar kafarar fóru niður að flakinu til að sækja þangað hluta af fallbyssu sem til stendur að gera upp. Menn úr sprengjudeild Landhelgisgæslu Íslands koma væntanlega til Seyðisfjarðar á morgun til að gera sprengjuna óvirka. Nokkur fjöldi sprengja hefur fundist í og við El Grillo gegnum tíðina.