Áætlað er að reiðhöllin á Hornafirði verði tilbúin til notkunar á vordögum, en búið er að reisa 8 bil af 13 og hefur gengið vel þegar viðrað hefur til framkvæmda. Reiðhöllin er 1570 fermetrar og er hún 54,35 metrar að lengd og 24 metrar að breidd. Hesthús er áfast við reiðhöllina og mun það rúma um 20 hross og er það 270 m2 að stærð.
Strangir útboðsskilmálar Landsvirkjunar vegna útboðs
á rekstri mötuneytis og ræstinga í Fljótsdalsstöð hafa fælt heimamenn frá því
að bjóða í verkin. Þetta segir oddviti Fljótsdalshrepps. Talsmaður
Landsvirkjunar segir skilyrðin í samræmi við gæðastefnu fyrirtækisins. Útboðin
verða opnuð á morgun.
Um Eskifjarðarbæ gengur nú út um allt undirskriftalisti þar sem beðið er um stuðning við forsetaframboð Guðmundar Ragnars Kristjánssonar frá Eskifirði. Austurglugginn hefur þær fréttir að þegar hafi um 70 undirskriftir safnast og að heimamenn séu auðfúsir að sýna framboði Guðmundar stuðning.
Tvö tilboð bárust
í rekstur mötuneytis og ræstingar í Fljótsdalsstöð. Útboðin voru opnuð fyrir
helgi en eins og Austurglugginn greindi frá fældust heimamenn stranga útboðsskilmála.
Heilbrigðisstofnun
Austurlands hefur tekið við rekstri dvalarheimilisins Helgafells á Djúpavogi.
Viðvarandi halli var á rekstri heimilisins og segir Björn Hafþór Guðmundsson, oddviti
Djúpavogshrepps, að erfitt hafi verið að verja hann öllu lengur. Í bókun
sveitarstjórnar segir gleðilegt að ákvörðun um að hreppurinn hætti rekstri
dvalarheimilisins hafi ekki leitt til að því yrði lokað.
Stefán Þorleifsson í Neskaupstað skrifar í austurgluggann 11 janúar 2008:
Í Svæðisfréttum Ríkisútvarpsins á Austurlandi hafa að undanförnu orðið nokkrar umræður um þjónustu og staðsetningu Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað.
Til upplýsingar fyrir þá sem ekki vita um tilurð þess þá finnst mér rétt að upplýsa að það var byggt fyrir framtak og að mestu fyrir fjármagn frá Neskaupstað. Baráttan fyrir byggingu þess hófst árið 1944 en það tók þó ekki til starfa fyrr en 18.janúar árið 1957.