Allar fréttir
Þrettán í framboði til forseta
Þrettán einstaklingar hafa skilað inn undirskriftalistum vegna framboðs til forseta Íslands. Þeir eru á ferð um landið til að kynna sig og hitta fólk. Katrín Jakobsdóttir, fyrrum forsætisráðherra verður eystra um helgina.Hæfileikakeppni í heimi án olíu
Listaakademía Verkmenntaskóla Austurlands frumsýnir um helgina nýtt leikverk sem hlotið hefur heitið „Hæfileikarnir.“ Með því vaknar leiklistarstarfsemi í skólanum aftur úr dvala en síðast var sett upp verk þar árið 2019.Loks líf í Faktorshúsinu á ný
Líf kviknaði á ný svo um munaði í einu merkasta húsi Djúpavogs, Faktorshúsinu, þegar þar opnaði þar dyrnar fyrsta sinni fyrirtækið Faktor brugghús um miðja síðustu viku. Troðið hefur verið öll kvöld síðan.
Fótbolti: Mjög ánægður með frammistöðuna gegn úrvalsdeildarliðinu
Brynjar Árnason, þjálfari 2. deildarliðs Hattar/Hugins, segist hafa verið ánægður með frammistöðu liðsins þrátt fyrir 0-1 tap gegn úrvalsdeildarliði Fylkis í 32ja liða úrslitum bikarkeppnin karla í knattspyrnu á Fellavelli í gær.Enn mengun í neysluvatni Breiðdælinga
Staðan er óbreytt varðandi vatnsból Breiðdælinga en þar uppgötvaðist mengun á þriðjudaginn var. Hún enn til staðar og viðkvæmum einstaklingum ráðlagt að sjóða allt neysluvatn á meðan.
Ekki alls staðar hægt að plokka fyrir snjó
Á sunnudaginn kemur fer fram á landsvísu Stóri plokkdagurinn sem af gárungum er gjarnan kallað gönguferð með tilgang enda valsa áhugasamir þá um og hirða upp rusl samhliða heilsusamlegum göngutúr. Sú dagsetning gengur þó ekki upp alls staðar sökum snjóalaga og skafla á stöku stöðum.