Ásgeir Máni íþróttamaður Hattar 2024

Ásgeir Máni Ragnarsson, Evrópumeistari í hópfimleikum, var útnefndur íþróttamaður Hattar á þrettándagleði félagsins í vikunni. Þrír aðrir íþróttamenn fengu viðurkenningar og tveir sjálfboðaliðar voru verðlaunaðir fyrir störf sín.

Ásgeir Máni var í íslenska landsliðinu í flokki blandaðra liða á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum. Ásgeir var lykilmaður í liðinu, einkum við æfingar á dýnu og trampólíni. Árangurinn markaði tímamót því þetta var fyrsti stóri titill íslenskra drengja í hópfimleikum.

Hann hefur einnig náð frábærum árangri með liði Hattar og varð Íslandsmeistari í fullorðinsflokki blandaðra liða. Ásgeir Máni fékk einnig viðurkenningu sem fimleikamaður Hattar.

Þrjár aðrar deildir völdu sitt íþróttafólk fyrir þrettándann. Adam Eiður Ásgeirsson var útnefndur körfukattleiksmaður Hattar, en liðið komst síðasta vor í fyrsta sinn í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar. Adam var þar lykilmaður en hann er fyrirliði liðsins og leiðtogi bæði innan vallar og utan.

Björg Gunnlaugsdóttir er knattspyrnukona Hattar ársins 2024 en hún var lykilmaður í liði FHL sem fór upp í úrvalsdeild í sumar. Þá spilaði Björg með U-19 ára landsliðinu á árinu.

Hafdís Anna Svansdóttir var valin frjálsíþróttakona ársins. Hún ávann sér á árinu keppnisrétt á Íslandsmóti fullorðinna í 400 metra hlaupi þar sem hún varð í fjórða sæti. Sá árangur skilaði henni sæti í íslenska unglingalandsliðinu. Hún varð Íslandsmeistari 16-17 í þeirri grein og Íslandsmeistari innanhúss í 800 metra hlaupi.

Hjördís og Guðmundur fengu starfsmerki


Móðir hennar, Hjördís Ólafsdóttir, fékk starfsmerki Hattar, sem veitt er sjálfboðaliðum fyrir framlag þeirra til félagsins. Hjördís var formaður frjálsíþróttadeildarinnar frá 2016-24, þar áður gjaldkeri í tvö ár og er enn í stjórn deildarinnar, auk þess að vera varamaður í stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands. Hjördís hefur verið lykilmaður í stærstu mótum sem haldin hafa verið á Austurlandi, sem eru Meistaramót Íslands 11-14 ára árin 2018 og 2021 og Unglingalandsmóti UMFÍ 2017. Hún kom einnig að því að frjálsíþróttir fengu aðstöðu í fimleikahúsinu á Egilsstöðum.

Guðmundur Björnsson Hafþórsson var á sama tíma og Hjördís formaður Hattar rekstrarfélags, sem heldur utan um meistaraflokka félagsins og annan flokk karla. Hann á þar stóran þátt að félagið tengist þremur liðum sem taka þátt í Íslandsmótinu í knattspyrnu: karlaliðum Hattar/Hugins og Spyrnis og FHL. Guðmundur hefur verið drífandi í öllu starfi, svo sem fjáröflunum, rekstrarfélagsins og samstarfi austfirskra knattspyrnufélaga.

hottur threttandagledi 2025 starfsmerki

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.