Körfubolti: Haukar drógu Hött með sér niður í fallbaráttuna

Körfuknattleikslið Hattar fór illa að ráði sínu þegar það tapaði 86-89 fyrir botnliði Hauka í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Úrslitin þýða að Höttur er fyrir alvöru kominn í fallbaráttu við upphaf seinni helmings deildarinnar.

Það var góður kafli lok fyrsta leikhluta sem fyrst bjó til forskot Hauka. Þeir skoruðu níu stig gegn tveimur síðustu 3,5 mínúturnar og voru 12-22 yfir eftir hann. Hattarmenn áttu hins vegar áhlaup í öðrum leikhluta, fóru úr 16-30 í 33-33 og voru yfir 39-38 í hálfleik.

Hattarmenn virtust ætla að halda áfram á svipaðri braut en um miðjan þriðja leikhluta snéru Haukar leiknum aftur sér í vil, skoruðu þá ellefu stig í röð. Höttur svaraði með áhlaupi undir lokin og náði muninum niður í tvö stig, 62-64.

Loksins þriggja stiga körfur í blálokin


Bilið breikkaði áfram í upphafi fjórða leikhluta en Hattarmenn náðu þó engu að síður að búa sér til tækifæri undir lokin. Obie Trotter skoraði tvær þriggja stiga körfur í röð sem breyttu stöðunni úr 74-85 í 80-85 þegar um mínúta var eftir. Í viðbót fylgdi þriggja stiga karfa frá Justin Roberts. Þetta voru einu þriggja stiga körfur þeirra tveggja í leiknum og helmingur þeirra skota sem Höttur setti niður fyrir utan línuna á föstudagskvöld.

Þá fylgdi í kjölfarið karfa úr teignum og svo vítaskot að auki sem kom Hetti í 86-88 þegar 16,5 sekúndur voru eftir. Höttur mætti Haukum framarlega eftir innkasti og gestirnir misstu boltann út af. Höttur tók leikhlé og leitaði að þriggja stiga skoti í von um að vinna leikinn.

Gott skot var ekki auðfundið og endaði með að Gustav Suhr-Jessen skaut úr vinstra horninu en hitti ekki körfuna. Haukar náðu í víti, skoruðu úr því seinna. Þar með voru tvær sekúndur eftir. Justin Roberts skaut frá miðju en var fjarri körfunni.

Roberts var stigahæstur á vellinum með 26 stig. Hann spilaði virkilega vel í öðrum leikhluta þegar hann keyrði ákaft á körfuna. Obie skoraði 17 stig og Nemanja Knezevic 17, auk þess að taka 12 fráköst.

Hvað gerðist og hvað þýða úrslitin?


Leikur Hattar var heilt yfir flatur, helst í öðrum leikhluta var einhver ákefð. Í liðinu eru góðar þriggja stiga skyttur en þær hafa ekki náð sér á strik síðustu leiki, utan seinni hálfleiksins gegn Álftanesi fyrir jól enda vannst sá leikur. Varnarleikur liðsins í kvöld var ekki góður, of oft voru Hattarmenn að horfa á boltann og steingleymdu manninum sem þeir áttu að dekka. Það segir sitt að Haukar skoruðu 62 stig úr teignum og voru með 70,5% nýtni þar. Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, sagði eftir leikinn að frammistaðan hefði verið hræðileg.

Þessi úrslit sem önnur þýða að Höttur er kominn í fallbaráttu þegar seinni helmingur deildarinnar er að hefjast. Haukar eru á botninum með sex stig en Höttur í næst neðsta sæti með átta stig. Tveimur stigum ofar eru Álftanes, Valur og ÍR sem unnu öll sína leiki í umferðinni. Það þýðir þó að jafn langt er fyrir Hött niður í botnsætið og upp í úrslitakeppnisæti. Liðin fjögur í 4. – 7. sæti eru síðan fjórum stigum á undan.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.