Blak: Kvennaliðið vann sinn þriðja leik í vetur
Kvennalið Þróttar Neskaupstað vann sinn þriðja leik í úrvalsdeild kvenna í vetur þegar liðið lagði Þrótt Reykjavík 1-3 á útivelli. Karlaliðið spilaði líka við Þrótti í höfuðborginni en tapaði með sama mun.Basl var á Þrótti Neskaupstað í fyrstu hrinunni sem tapaðist 25-17. Liðið var síðan lengst af yfir í annarri hrinu og vann hana 21-25, þótt það lenti í smá brasi um hana miðja.
Í þriðju hrinu skiptust liðin sex sinnum á forustunni áður en Þróttur Neskaupstað náði undirtökunum. Liðið hafði verið 12-10 yfir en breytti stöðunni í 14-17. Liðið var síðan með pálmann í höndunum í stöðunni 21-23 en heimaliðið var ekki búið, skoraði þrjú stig í röð. Eitt stig þess í viðbót hefði tryggt sigur en Norðfjarðarliðið skoraði hins vegar þrjú stig í röð og vann hrinuna 24-26.
Það hafði síðan yfirburði eftir að sú fjórða komst af stað og vann hana 18-25. Sigur liðsins er ekki síst eftirtektarverður fyrir þær sakir að enginn þeirra erlendu leikmanna sem spilað hafa með liðinu gátu verið með.
Þróttur Neskaupstað náði ekki að vinna sig upp um sæti, en er hins vegar aðeins einu stigi frá Þrótti Reykjavík þegar búið er að spila 12 leiki í deildinni.
Dæmið snýst við hjá karlaliðunum
Karlalið sömu félaga léku líka um helgina og þar vann Þróttur Reykjavík, sem hefur risið upp í vetur eftir nokkurra ára ládeyðu og tekur þátt í toppbaráttunni með KA og Hamri, sem verið hafa einráð síðustu ár.
Í fyrstu hrinu náði Þróttur Reykjavík fljótt um fjögurra stiga forustu og hélt henni að segja út í gegn, vann 25-20. Í annarri hrinu náði liðið mest 11 stiga forskoti, 22-11 áður en Norðfjarðarliðið saxaði á í lokin þannig lokatölurnar urðu 25-17.
Gestaliðið vann þriðju hrinu með frábærum endasprett, var undir 18-19 en vann 20-25. Í fjórðu hrinu skoraði Reykjavíkurliðið fyrstu fjögur stigin, Norðfjarðarliðið minnkaði muninn af harðfylgi í 20-19 en þar með var það búið og Þróttur Reykjavík vann 25-22.
Þróttur Neskaupstað er með 8 stig úr 14 leikjum, hefur unnið tvo leiki á tímabilinu. Það tekur á móti toppliði Hamars, sem ekki hefur tapað leik, á föstudagskvöld en kvennaliðið á ekki leik fyrr en gegn Völsungi um miðja næstu viku.
Mynd: Blakdeild Þróttar/Sigga Þrúða