Austfirskir Evrópumeistarar: Stilltum væntingunum í hóf fyrir ferðina
Héraðsmennirnir Ásgeir Máni Ragnarsson og Bjartur Blær Hjaltason urðu í október Evrópumeistarar í hópfimleikum í unglingaflokki með blönduðum liðum. Þeir segjast hafa farið með hóflegar væntingar í langferð þar sem keppnin var haldin í Bakú í Aserbaídsjan.„Við vorum ekki yfirmáta bjartsýn svona fyrirfram því þarna voru allir þeir bestu á einum stað og ekki margir sem í fyrstu voru að spá okkur einhverju góðu gengi og sjálf vorum við búin að stilla væntingum mjög í hóf.
Það var í raun ekki fyrr en við komumst í úrslitin og jafnvel þó hópurinn hefði gert lítils háttar mistök í undanúrslitakeppninni að við fórum að trúa og gera okkur grein fyrir því að við gætum farið langt. Við náðum svo að stilla vel saman strengina á æfingum fyrir úrslitin og allt gekk svo að óskum þegar til kom,“ segja þeir um mótið. Til þessa hafði íslenskt landslið með strákum ekki komist ofar en í þriðja sæti.
Báðir hafa lengst af æft hjá Hetti á Egilsstöðum. Bjartur Blær hefur hins vegar skipt yfir í Stjörnuna í keppni. Báðir vísa þeir á eldri bræður sína þegar þeir eru spurðir hvers vegna þeir hafi valið fimleikana.
„Þetta var nú ekki eitthvað sem ég valdi mér. Bróðir minn var í fimleikum og meðal annars þjálfari hér á Egilsstöðum en er núna að þjálfa hjá Stjörnunni, sem útskýrir hvers vegna ég keppi nú undir þeirra merkjum.
Hann náði mér inn þegar ég var þriggja ára og ég hef haldist í því sporti síðan þá. Ég prófaði ýmislegt annað eins og körfubolta, fótbolta og frjálsar en fimleikarnir stóðu alltaf upp úr,“ segir Bjartur.
„Það er dálítið elsta bróður mínum að kenna. Hann var á kafi í fimleikum og ég kom inn í þetta um sex ára aldurinn í gegnum hann og við höfum æft mikið saman. Ástríðan fyrir þessu hefur bara aukist með tímanum og þessi árangur er enn frekari hvatning,“ segir Ásgeir.
Leiðin er löng frá Egilsstöðum, þrjú tengiflug hvora leið auk þess sem í þeirra tilfelli bættust flug milli Egilsstaða og Reykjavíkur, samanborið við flesta liðsfélaga þeirra. Þeir segjast því báðir hafa verið búnir á því þegar þeir komust heim eftir að hafa unnið afrekið.
Lengri útgáfa birtist í Austurglugganum. Hægt er að panta áskrift hér.