Héldu í víking til að kynna íslensku glímuna

Tveir Austfirðingar voru hluti af fimm manna hópi afreksfólks sem síðasta haust fór til Bandaríkjanna til að kynna íslenska glímu á víkingahátíð.

Fulltrúar Austurlands voru Þórður Páll Ólafsson og Kristín Embla Guðjónsdóttir sem keppa undir merkjum UÍA en það gerir glímufólk sem æfir hjá Val Reyðarfirði.

Hópurinn hélt til lítils bæjar í Marylandfylki í Bandaríkjunum en þar fór fram nokkurs konar víkingahátíð eða samkoma þeirra sem halda vilja gömlum hefðum frá víkingatímanum á lofti.

Fyrstu dagana alla tók hópurinn að sér að kenna fangbrögðin og undirstöðuatriði glímunnar. „Þetta var allt skipulagt af hópi sem kallar sig Odin Warrior Tribe en sá hópur er að stórum hluta samsettur af fólki úr bandaríska hernum sem hefur mikinn áhuga á fornum siðum og venjum og ekki síst bardagaaðferðum víkinganna áður fyrr.

Þau reka svona lítið víkingaþorp þar sem viðburðurinn fór fram. Þetta gekk allt vel og skemmtilega fyrir sig og það er einmitt með einhverjum svona hætti sem Íslendingar eiga sjálfir að kynna þjóðaríþróttina að mínu mati, með svona litlu þorpi að víkingasið.“

Það kom hópnum nokkuð á óvart að allmargir á svæðinu þekktu til íslensku glímunnar og sýndu margir áhuga á að vita og fræðast meira.

„Það kom okkur vissulega á óvart hversu margir á svæðinu virtust vita af þessari þjóðaríþrótt okkar. Það komu tiltölulega fáir fyrsta daginn en svo fjölgaði í hópnum daglega fram að lokum. Þetta tókst frábærlega upp og við vorum öll mjög ánægð með hvernig til tókst. Kannski er þetta byrjunin á einhverju fleiru í þessa áttina.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.