Hrefna Lára Zoéga útnefnd íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2024

Hrefna Lára Zoéga, skíðakona úr Skíðafélagi Fjarðabyggðar, hefur verið útnefnd íþróttamanneskja Fjarðabyggðar fyrir árið 2024. Sveitarfélagið heiðraði íþróttafólk fyrir afrek þess á árinu við athöfn á laugardag.

Hrefna Lára var síðasta vetur bikarmeistari Skíðasambands Íslands í flokki 14-15 ára stúlkna og vann til verðlauna á bikarmótum, Unglingameistaramóti og Unglingalandsmóti Skíðasambands Íslands. Hún er líka í íslenska ungmennalandsliðinu á skíðum.

Í umsögn segir að hún hafi „óbilandi keppnisskap, dugnað og framúrskarandi fyrirmyndarhegðun sem hefur haft hvetjandi áhrif á aðra iðkendur.“

Um leið voru afhent tvenn hvatningar verðlaun til ungra íþróttamanna sem náð hafa góðum árangri í íþrótt sinni á árinu. Annars vegar Árndís Eva Arnþórsdóttir sem æfir körfubolta í gegnum Hrafnkel Freysgoða á Breiðdalsvík. Í umsögn um hana segir að hún sé þekkt fyrir jákvæðni, metnað og óþreytandi leit að framförum. Hún leggi sig alla fram í bæði æfingum og leikjum og sé þannig leiðandi innan körfuboltans. Hún sé kappsöm og hvetji félaga sína áfram með góðu fordæmi.

Hinn er Daníel Michal Grzegorzsson, knattspyrnumaður úr Val á Reyðarfirði. Hann á að baki þrjá 15 ára landsleiki og var skömmu fyrir jól valinn í U-16 ára landslið Íslands auk þess að vera lykilmaður hjá KFA síðasta sumar. Um hann segir að hann búi yfir miklum styrk og réttu hugarfari, bæði innan vallar sem utan. Hann sé fyrirmynd fyrir aðra unga fótboltamenn og hvetji þá áfram með jákvæðni og vinnusemi. Daníel skipti nýverið yfir til ÍA.

Íþróttafélögin í Fjarðabyggð útnefna einstaklinga úr sínum röðum sem íþróttamanneskju Fjarðabyggðar. Auk Hrefnu voru tilnefnd Þórður Páll Ólafsson, glímumaður úr Val, Ásdís Olsen Eðvaldsdóttir, skíðakona frá Austra og Stefán Sveinsson, hestamaður úr Blæ.

Mynd: Fjarðabyggð

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.