Unga fólkið og mannauðurinn
Oft gleymist í umræðu um auðlindir þjóða að verðmætust erum við sjálf og alveg sérstaklega þarf að huga að stöðu ungu kynslóðanna í þeim efnum. Íslendingum var lengi vel tamt að horfa fyrst og fremst til náttúruauðlinda sinna og var þá einblínt á fiskinn í sjónum og orkuna. Áþreifanlega hefur þó ljóst að í landinu sjálfu, náttúrperlum þess og víðáttu eigum við einnig stórkostlega auðlind. Um leið fylgir því mikil ábyrð að vera vörslumenn þeirra verðmæta, vernda þau og gæta og hafa að láni frá komandi kynslóðum.
Síðbúinn áhugi Framsóknar á byggðamálum
Oddviti framsóknarflokksins hér í Norðausturkjördæmi, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur að undanförnu viðrað þau sjónarmið sín að nú þurfi að fara í aðgerðir og hefja sókn í byggðamálum. Um það má segja að betra er seint en aldrei, en nokkuð er þessi áhugi síðbúinn.Dýrt innanlandsflug - höfuðborg okkar allra
Ég er reglulegur notandi innanlandsflugs. Búsettur á Egilsstöðum, með nokkur vinnutengd verkefni í Reykjavík og fjölskyldu á stór-Reykjavíkur svæðinu. Eftir því sem árin líða og fjölskyldan stækkar hefur hins vegar skiptunum ekki aðeins fækkað sem við fölskyldan nýtum þjónustu Flugfélagsins, því hefur einfaldlega verið hætt nema brýna nauðsyn beri til.
Náttúruspjöll á Eskifirði
Nú er nýlokið framkvæmdum við Hlíðarendaá hér á Eskifirði. Þær hófust í júlí 2015. Þarna var reistur stór og mikill steypuveggur ofarlega og margra metra há grjóthleðsla á löngu svæði neðar. Áin var sakleysislegur lækur sem elstu menn muna ekki til að hafi farið yfir bakka sína. Nefni til gamans að nýlega hefur krakki misst rauða fötu þarna niður og þangað kemst enginn nema vera með útbúnað til klettaklifurs.Að efla byggð á landsbyggðinni
Á dögunum áttu undirritaðar þess kost að sitja ráðstefnu Byggðastofnunar á Breiðdalsvík sem bar yfirskriftina: „Sókn landsbyggða. Kemur unga fólkið? Hvar liggja tækifærin?”
Efling landsbyggðar
Áratugum og kynslóðum saman höfum við horft upp á straum íbúa af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Slíkur hefur fjöldinn verið að það mætti ætla að um kerfisbundna fólksflutninga hafi verið að ræða, ef við vissum ekki betur.Verði ljós
Stundum er látið eins og munur á stefnu stjórnmálaflokka sé lítill. Sömu málin komi fram og í aðdraganda kosninga virðist stefnumálin áþekk. Þetta hefur verið mjög áberandi þetta haustið. Heilbrigðismál, velferðarkerfið, menntun fyrir alla, umhverfismál. Og réttindabarátta ýmis konar. Stuðningur við alls konar. Þessar áherslur eru háværar, ekki síst hjá hægri flokkunum.