Forsvarsmenn nemendafélaga framhaldsskólanna þurfa að setjast niður eftir söngkeppnina í kvöld og taka erfiðar ákvarðanir um framhaldið. Stærsta uppgjörið verður við hvers konar keppni þeir vilja sjá í framtíðinni. Hreina vinsælda- og fagkeppni eða félagslegan viðburð þar sem allir hafa jöfn tækifæri. Og stærsta spurningin af öllu: Er bein sjónvarpsútsending nauðsyn?
Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) vinnur nú að verkefni sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPP) og varðar þróun samgangna í dreifðum byggðum í þágu ferðaþjónustu og heimafólks. Verkefnið er til þriggja ára (2011-2013) og ber heitið Transtourism (sjá: www.transtourism.eu), en að því standa auk RMF sveitarfélög, stofnanir og háskólar á N. Írlandi, Írlandi, Skotlandi og Svíþjóð. Á Íslandi starfar RMF að verkefninu með Þróunarfélagi Austurlands, Markastofu Austurlands, Vegagerðinni og ferðaþjónustu aðilum á Borgarfirði Eystri.
Útivist og ferðalög fjölskyldunnar er fastur liður á flestum heimilum og nú um páska leggja líklega þúsundir þeirra land undir fót. Til þess að ferðalagið skapi góðar minningar og heppnist sem best er mikilvægt að vera með réttan útbúnað og undirbúa sig vel.
Rétt eins og ég tel mikilvægt að vera sáttur við stöðu sína hverju sinni
finnst mér jafn mikilvægt að prófa að skipta annað slagið um umhverfi.
Að fara eitthvað, sjá hvernig aðrir lifa – þó ekki væri nema að lesa um
hvernig aðrir hafa það. Þetta er ekki síst mikilvægt því maður er svo
fljótur að verða samdauna sínu umhverfi. Það getur leitt til stöðnunar
og það þykir mér hættulegt.
Eitt það athyglisverðasta við nýja ríkisstjórn Danmerkur er
yngsti ráðherrann. Thor Möger Pedersen er 26 ára, ráðherra skattamála og
varaformaður Sósíalísa þjóðarflokksins. Ríkisstjórnin, undir forsæti Helle
Thorning-Schmidt boðar meðal annars breytingar á dönsku efnahagslíf og græna
atvinnusköpun sem lausn við núverandi efnahagsvanda.
Útivist og ferðalög fjölskyldunnar er fastur liður á flestum heimilum og nú um páska leggja líklega þúsundir þeirra land undir fót. Til þess að ferðalagið skapi góðar minningar og heppnist sem best er mikilvægt að vera með réttan útbúnað og undirbúa sig vel.
Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) vinnur nú að verkefni sem styrkt er af
Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPP) og varðar þróun samgangna í
dreifðum byggðum í þágu ferðaþjónustu og heimafólks. Verkefnið er til
þriggja ára (2011-2013) og ber heitið Transtourism (sjá:
www.transtourism.eu), en að því standa auk RMF sveitarfélög, stofnanir
og háskólar á N. Írlandi, Írlandi, Skotlandi og Svíþjóð. Á Íslandi
starfar RMF að verkefninu með Þróunarfélagi Austurlands, Markastofu
Austurlands, Vegagerðinni og ferðaþjónustu aðilum á Borgarfirði Eystri.
Það er mál til komið að stjórnvöld opinberi stefnu sína í málefnum
landsbyggðarinnar- og segi okkur umbúðalaust hvort samfélögin á
landsbyggðinni eigi sér lífs von.
Undanfarin ár hefur niðurskurðarhnífurinn verið á lofti – hörð atlaga
hefur verið gerð að grunnþjónustu hvar sem er í dreifðari byggðum.
Síðast liðið haust sýndu íbúar víðs vegar um landið hug sinn í verki er
þeir slógu skjaldborgir um heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar í
sínum heimabyggðum- til þess að mótmæla harkalegum áformum um niðurskurð
á fjárveitingum til þessara stofnana. Sem betur fer var tekið tillit
til þessara mótmæla en bara til eins árs. Nú búa stjórnendur þessara
stofnana sig undir aðra atlögu.