Icelandair vill hraða uppbyggingu á Egilsstaðaflugvelli
Icelandair Group telur hagkvæmast að byggja flugvöllinn á Egilsstöðum upp sem varaflugvöll fyrir Keflavíkurflugvöll. Félagið varar hins vegar við hugmyndum um gjaldtöku til uppbyggingar varavöllum.Gæsluvarðhald framlengt í smyglmáli
Tveir karlmenn, sem handteknir voru við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þann 1. ágúst síðastliðinn með mikið magn fíkniefna í fórum sínum, hafa verið úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald.Fór út af á Öxi
Ökumaður slapp ómeiddur þegar bifreið hans skautaði út af í neðstu beygjunni af leiðinni niður af Öxi í gær. Þá slapp hjólreiðamaður vel þegar hann varð fyrir bifreið á Háreksstaðaleið í síðustu viku.Hringvegurinn allur með bundnu slitlagi: Merkisdagur í samgöngusögu Íslands
Því var fagnað í Berufirði fyrir viku að Hringvegurinn er nú allur lagður bundnu slitlagi eftir að nýr vegur yfir fjörðinn var formlega opnaður. Að klæða þjóðveg númer eitt hefur tekið um fjörtíu ár.Tækifæri til að spyrja heilbrigðisráðherra beint út
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, er væntanleg austur á land á fimmtudag til að kynna heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Ráðherra ásamt fleirum mun þá sitja fyrir svörum um stefnuna á opnum fundi.Samfélögin á Seyðisfirði og Mjóafirði þola ekki mikla bið eftir göngum
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hvetur til þess að skoðaðar verði allar mögulegar útfærslur til að flýta því að göng frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar og þaðan áfram til Norðfjarðar um Mjóafjörð verði að veruleika.Trukkar með búnað Sheerans með Norrænu
Átta flutningabílar með tengivagna, hlaðnir búnaði frá tónleikum enska tónlistarmannsins Ed Sheeran, voru meðal þeirra farartækja sem fóru um borð í Norrænu sem sigldi frá Seyðisfirði í morgun.Makríllinn feitari og fyrr á ferðinni en undanfarin ár
Makrílvertíðin í ár hefur gengið með miklum ágætum að sögn þeirra Friðriks Mars Guðmundssonar og Kjartans Reynissonar hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði.
Heyskapur sækist hægt á Borgarfirði
Heyskapur hefur ekki gengið vel á Borgarfirði í sumar í vætutíðinni. Jón Sigmar Sigmarsson bóndi á Desjarmýri í Borgarfirði segist vonast til að bændur geti heyjað meira á næstu vikum en staðan sé ekki nógu góð.