Sveitarfélagið fellst ekki á að borga skaðabætur fyrir skemmdir á lóð
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hefur hafnað kröfu lóðareiganda í Fellabæ um skaðabætur fyrir skemmdir á lóðum hans við framkvæmdir. Það mun þó láta laga þær skemmdir sem sannarlega urðu vegna gatnaframkvæmda.
„Dúknum hefur alltaf fylgt mikill leyndardómur“
„Þetta er stór viðburður og ekki á hverjum degi sem Þjóðminjasafnið sendir gripi til sýningar út á land, hvað þá svona gamlan og merkilegan,“ segir Berghildur Fanney Hauksdóttir, safnastjóri á Bustarfelli.Bíða svara um bætur vegna vatnstjóns
Seyðisfjarðarkaupstaður hefur óskað eftir stuðningi frá íslenska ríkinu vegna tjóns sem varð eftir miklar rigningar í lok júní. Skoðað er hvort hægt verði að bæta ofanflóðavarnir til framtíðar um leið og hreinsað verður eftir flóðin.
Reglur um vaktstöðu í brú ítrekaðar eftir strand Akrafells
Forstjóri Samskipa segir að hafi farið verið yfir öryggisreglur á skipum félagsins eftir að Akrafellið strandaði í mynni Reyðarfjarðar fyrir tæpum þremur árum. Sofandi stýrimaður var talin vera aðalástæðan fyrir strandinu.
Of fáir á vakt í brúnni þegar Akrafellið strandaði
Fleiri en einn hefðu átt að vera á vakt í brú flutningaskipsins Akrafells þegar það strandaði við Vattarnes, yst í Reyðarfirði, haustið 2014. Viðvörunarkerfi í brúnni voru heldur ekki í gangi. Aðalorsökin er samt að stýrimaður sofnaði á vakt.
Fjórtán milljóna afgangur á Borgarfirði
Tæplega fjórtán milljóna króna afgangur varð af rekstri Borgarfjarðarhrepps á síðasta ári, að því er fram kemur í ársreikningi.
Þörf er á þremur sálfræðingum við Skólaskrifstofu Austurlands
Biðlistar eftir sálfræðiþjónustu á svæði Skólaskrifstofu Austurlands eru langir. Forstöðumaður skrifstofunnar segir að líklega verði brugðist við með tímabundinni, aðkeyptri þjónustu til styttingar biðlista.Breiðdalsá í mestri hættu af strokulaxi úr eldi
Lagst er gegn fiskeldi í Stöðvarfirði vegna hættu á blöndunar eldislax þaðan við villtan lax í Breiðdalsá í nýju áhættumati Hafrannsóknastofnunar. Á sömu forsendu er lagt til að eldi með frjóum fiski í Berufirði verði takmarkað við sex þúsund tonn.
Fresta afgreiðslu um nýtingu æðarvarps
Afgreiðslu á nýtingarrétti æðarvarps á jörðinni Búlandsborgum í Norðfirði á var frestað á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar þar sem bæjarfulltrúarnir tveir sem sátu þá á fundinum voru ósammála. Fulltrúi Fjarðalistans telur ágalla hafa verið á auglýsingunni.
Telja MAST hafa margbrotið lög við útgáfu fiskeldisleyfis í Reyðarfirði
Veiðifélögin á Austurlandi telja Matvælastofnun hafa farið út fyrir heimildir sínar þegar stofnunin gaf leyfi fyrir 7000 tonna eldi Laxa í Reyðarfirði. Beðið er rökstuðnings MAST á ákvörðuninni.
Kosið verður um prest í Hofsprestakalli
Biskupsstofa hefur staðfest að almenn prestskosning verði um nýjan sóknarprest í Hofsprestakalli sem nær yfir Hofs-, Skeggjastaða- og Vopnafjarðarsóknir. Ekki hefur er enn ljóst hvenær verður kosið en nýr prestur á að taka við um miðjan október.