Besti leikur Fjarðabyggðar
Þegar mesta
stressið rann af leikmönnum Fjarðabyggðar tóku þeir völdin á vellinum. FH-ingum
gekk illa að ráða við hraða Guðmundar Atla Steinþórssonar, Stefáns Þórs
Eysteinssonar, Sveinbjarnar Jónassonar og Inga Þórs Þorsteinssonar sem skilaði sér
í nokkrum hálffærum. Það besta féll fyrir Guðmund Atla sem komst einn á móti
markverði en skaut í stöng.
Eftir að hafa sloppið
fyrir horn í seinni hálfleik tók FH öll völd á vellinum í seinni hálfleik. Þeir
sóttu stíft að marki Fjarðabyggðar og það skilaði marki á 55. mínútu þegar Jónas
Grani Garðarsson stýrði fyrirgjöf frá vinstri í netið. Matthías Guðmundsson
skoraði annað markið tíu sekúndum síðar. Tryggvi Guðmundsson, sem var nýkominn
inn á, slapp í gegnum rangstöðuvörn Fjarðabyggðar og sendi boltann út í teiginn
á Matthías sem afgreiddi hann í netið.
FH réði áfram
gangi leiksins átti nokkrar ágætis fyrirgjafir en markvörður Fjarðabyggðar,
Srdjan Rajkovic, var vel á verði.
Magni Fannberg,
þjálfari Fjarðabyggðar, var ánægður með spil liðsins. „Mér fannst við mjög góðir,
sérstaklega í fyrri hálfleik. Við pressuðum FH vörnina og létum boltann ganga. Við
vorum óheppnir að skora ekki tvö mörk. Við áttum skot í stöng og tókum ranga ákvörðun
í öðru dauðafæri. En þetta er munurinn á liðunum, bestu liðin nýta svona
tækifæri.“
En leikurinn
breyttist. „Mörk breyta leikjum og þau gerðu það svo sannarlega í dag. Eftir að
hafa verið á rassgatinu í fyrri hálfleik skora FH-ingar mark og eflast við það.“
Heimir
Guðjónsson, þjálfari FH, las yfir sínu liði eftir afleitan fyrri hálfleik. „Þegar
menn spila í 32ja liða úrslitum gegn liði eins og Fjarðabyggð verður hugarfarið
að vera í lagi. Við vorum værukærir í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik vorum
við töluvert betri og það dugði okkur. Fjarðabyggð kom okkur á óvart. Liðið
spilaði mun meiri sóknarleik en við áttum von á.“
Tilkoma Tryggva
Guðmundssonar var meðal þess sem efldi FH liðið. „Tryggvi skilar alltaf sínu. Mér
fannst tilvalið að setja hann inn á þessum tímapunkti enda þurfti hann bara smá
stund til að leggja upp mark.“
Fjarðabyggð tekur á móti Stjörnunni í 1. deild á sunnudag klukkan 14:00