Það verður sannkallað páskarokk í Blúskjallaranum í Neskaupstað á laugardagskvöldið, en þar koma fram sjö hljómsveitir af staðnum og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Þing Samtaka aðila ferðaþjónustunnar var haldið á Egilsstöðum á fimmtudag og á föstudag kynntu austfirskir ferðaþjónustuaðilar vörur sínar á sýningu í Fjarðabyggðarhöllinni. Austurfrétt fylgdist með því hvernig gestirnir upplifðu Austurland.
Þeir eru ófáir Austfirðingarnir sem hafa tekið sporið undir leiðsögn Loga Vígþórssonar danskennara, enda hefur hann lagt leið sína hingað austur um margra ára skeið til að kenna Héraðsbúum að dansa. Logi sem verður fimmtugur á árinu var aðeins 16 ára þegar hann kom í sína fyrstu kennsluferð til Egilsstaða.
Hálfaustfirska sveitin Lith fór með sigur af hólmi í lagakeppni Rásar 2 þar sem sveitir kepptu sín á milli í nýjum útgáfum á lögum Gunnars Þórðarsonar. Gítarleikari sveitarinnar segir það hafa verið heiður að hitta Gunna sjálfan sem afhenti verðlaunin.
Rósa Valtingojer listakona og verkefnastjóri Sköpunarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði er í yfirheyrslu að þessu sinni. Hún komst í fréttirnar í vikunni þar sem Sköpunarmiðstöðin er tilnefnd til Eyrarrósarinnar. Þrátt fyrir miklar annir gaf hún sér tíma til að tala við okkur.
„Við vissum að málunum væri ábótavant, en þau eru enn verri en okkur óraði fyrir," segir Gísli Steinar Jóhannesson, verkefnastjóri hjá True Adventure og talsmaður fundar um aðgengismál fatlaðra sem haldinn verður á Hótel Héraði í kvöld.