Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sagði á almennum stjórnmálafundi á Djúpavogi í gærkvöld að ekki hefði verið ákveðið endanlega hvernig samgönguframkvæmdum verður forgangsraðað, en þær myndu allar frestast eitthvað. Ráðuneytið veit ekki enn hvað það mun hafa úr að spila á næstu tveimur til þremur árum og það mun ekki skýrast fyrr en líða tekur á þetta ár.
Kaldar strendur - heitir straumar er nafn á samsýningu tólf listamanna frá Íslandi og Noregi. Sýningin var sett upp á þremur stöðum í Norður Noregi á síðastliðnu ári og verður opnuð í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 17. janúar.
Á fimmtudag hefst opið útboð sérleyfa til leitar og vinnslu olíu og gass á Drekasvæðinu norðaustan Íslands. Er útboðið auglýst í stjórnartíðindum Evrópusambandsins og stendur fram í miðjan maí.
Útgerðir leita nú nýrra leiða í afla þar sem útlitið á loðnu er ekki beisið og bróðurpartur síldar sem veiðist ekki hæfur til manneldis. Auk Hugins VE, sem verið hefur við tilraunaveiðar á laxsíld, er Birtingur á leið í leit að henni og Loðnuvinnslan að gera skip og veiðarfæri klár í hið sama.
Mikið vetrarríki er nú á Austurlandi og víða fljúgandi hálka á vegum utan og innan þéttbýlis. Þannig hafa orðið í það minnsta fjórir árekstrar innanbæjar á Egilsstöðum í dag, svo dæmi sé tekið og fólk hefur dottið í hálkunni og meitt sig.
Víða í fjórðungnum eru él og hálka eða snjóþekja. Snjóað hefur töluvert og því hætta á skafbyl ef einhver vindur er að ráði. Breiðdalsheiði er þungfær, Öxi og Hellisheiði ófærar og ófært í Mjóafjörð.
Grænlandskynning var í Slysavarnarfélagshúsinu í Neskaupstað fyrr í dag og var húsfyllir. Það var Norðfirðingurinn StefánHerbertsson, sem hefur verið viðloðandi Grænland síðustu tíu árin og er nú með fasta búsetu þar, sem var með kynninguna. Frásögn hans af landi og þjóð var ákaflega skemmtileg og umfram allt fróðleg. Það var húsfyllir á fundinum og góður rómur gerður að máli Stefáns.