Allar fréttir
Sjö árum síðar
Aðdragandi þjóðaratkvæðagreiðslunnar um nýju stjórnarskrána 20. október 2012 var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Það var einnig atkvæðagreiðslan sjálf og úrslit hennar.Sameining samþykkt á Fljótsdalshéraði
Íbúar á Fljótsdalshéraði samþykktu í dag sameiningu við Borgarfjarðarhrepp, Seyðisfjarðarkaupstað og Djúpavogshrepp.Nýr umsjónarmaður í klaustrinu á Kollaleiru
Breytingar hafa orðið á mannahaldi í kaþólska klaustrinu á Kollaleiru í Reyðarfirði þar sem sr. Pétur Fintor hefur tekið við sem umsjónarmaður klaustursins.Afgerandi úrslit það jákvæðasta
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og formaður samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélagsins, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar segir talsverða vinnu við að undirbúa sameiningu sveitarfélaganna sem íbúar þeirra samþykktu í kosningum í dag. Eitt af því verður að finna nafn á sameinað sveitarfélag.Strengur fagnar 60 ára afmæli með styrkjum í heimabyggð
Í tilefni af 60 ára afmæli Veiðiklúbbsins Strengs hefur Strengur skrifað undir styrktarsamninga til þriggja ára við þrjú verðug verkefni í heimabyggð sinni, Vopnafirði. Framlög renna til Björgunarsveitarinnar Vopna, yngri deilda fótbolta hjá Ungmennafélaginu Einherja, og til Ísoldar Fannar Vilhjálmsdóttur, ungs listhlaupara á skautum, sem stefnir að því að keppa á næstu vetrarólympíuleikum sem haldnir verða 2022.Lýsa ánægju með úrslit kosninganna
Forsvarsmenn sveitarstjórna Seyðisfjarðarkaupstaðar, Djúpavogshrepps, Borgarfjarðarhrepps lýsa ánægju sinni með niðurstöður sameiningarkosninga í kvöld. Sveitarfélögin þrjú hafa ásamt Fljótsdalshéraði átt í viðræðum um sameingu undanfarið ár og var sameiningin samþykkt í sveitarfélögunum fjórum með afgrerandi hætti í dag.